>> .. TruKKaGeLLuZ .. <<
16.09.2006 16:28:12 / Linda

Er hætt þessu ..

Já, ég er ekki sú duglegasta og er því bara ákveðin í því að hætta bara með þessa síðu .. Þakka öllum sem hafa skoðað fyrir að kíkja, en spjalla bara við ykkur á msn .. Kveðja, Linda

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 22:20:24 / Linda

Útilega !

Time to blog ;) Við kaddlinn fórum í útilegu um seinustu helgi og það var gífurlega skondið .. ! Okkur var búið að langa að fara eikkað og ferðast pínulítið í svoldinn tíma en þar sem ég er ekki mikið heima hjá mér, og þar af leiðandi kem mjög seint heim á föstudagskvöldum, þá höfum við alltaf frestað því - tekur því ekki að leggja af stað á föstudegi svona seint, og svo drullast ég aldrei á fætur á laugardagsmorgnum .. En viti menn, mér tókst það um seinustu helgi .. Við fórum snemma á fætur á laugardeginum og fórum af stað .. Við keyrðum austur, fórum á Egilsstaði og skoðuðum aðeins þar, fórum svo í Hallormsstaðaskóg í Atlavík og tjölduðum þar .. Svo keyrðum við smá rúnt, fórum uppá Kárahnjúka að skoða .. Þegar við komum aftur á tjaldsvæðið, þá fórum við að tjalda og grilla .. Það gekk svosem allt í lagi til að byrja með, svona þangað til að grillið bræddi plastkassann okkar og við fundum vonda lykt, og það kom gat á grillið og voru nær engin kol eftir svo að það grillaði ekki kjötið okkar, þá ákvað Heimir að bæta smá grillvökva sem óvart slettist yfir aðra sneiðina - OJ ! Ég sagði honum að það mætti vera hann sneið, hann skafaði grillvökvann af .. Það skánaði nú lítið nema allt fylltist af reyk og látum og við sáum ekki hvort annað í allnokkrar sek .. ! Svo ákváðum við að smakka þetta og það var eiginlega bara óætt, svo við renndum inná Egilsstaði þar sem við fengum ekkert því það var gjörsamlega ALLT lokað .. Svo - if you´re starving, than you´ll not get anything to eat on Egilsstaðir after 11:30 ! Þetta var mjög sneðugt, fórum í badminton og hlóum mikið .. Við fórum svo til baka á sunnudaginum eftir að hafa drepist á því að liggja á þessu ótrúlega harða grasi þarna heila nótt, en á bakaleiðinni komum við við í Ásbyrgi, Dettifossi og svona skemmtilegt .. ! Þetta var mjög athyglisverð og skemmtileg ferð - mikið hlegið og mikið gaman .. Gott að komast svona aðeins í burtu ... ! Mæli með því að allir fari í útilegu til að auka rómantíkina og hamingjuna - gera eikkað saman .. !

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 21:07:11 / Linda

Vantar góð lög .. !

Kjéllunni vantar góð lög, mega vera róleg og allt hvað eina .. 8)

Er komin með VIÐBJÓÐ á öllum geisladiskunum mínum og Sálardisknum sem er búinn að rúlla í 17 tíma á dag í trukknum 5 daga vikunnar .. :$

Nú er ég alveg hugmyndalaus, vantar eikkað flippað og skemmtó .. ! Svo þið megið endilega hjálpa mér og skrifa eikker góð lög, megið koma með listann þess vegna ..

Fyrir utan þig Siggeir - ekkert rokk dæmi .. :D Haha !


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 03:39:52 / Linda

HoT or NoT .. ?!

Jáááááá ........... 8)

Kjéllan horfði á úrslitaleikinn í HM í knattspyrnu, og reyndar marga aðra leiki en úrstlitaleikinn .. Voða dugleg .. ! Þetta er bara merkilega fínt að horfa á þetta, kom mér á óvart svona af því að ég hef aldrei haft áhuga á því að horfa á fótbolta í sjónvarpinu .. Þetta var mjög gaman, spennandi leikur þarna milli Frakka og Ítala og margt sem átti sér stað þarna skemmtilegt .. Svo sem þegar þeir fóru allir eikkað að fara úr buxunum í lokin þegar leikurinn var búinn .. Kroppasýning ! ;)

En .. Hvað sem því líður þá var nú aðalumræðuefnið að ég var hérna heima að rökræða, ef svo má að orði komast, hvort að knattspyrnumaðurinn kynþokkafulli Zinedine Zidane væri flottur eða ekki .. :S Mér finnst hann MJÖG sætur og kynþokkafullur í geðveikt flottu formi og vel útlítandi miðað við fertugann karl að vera .. Heimir minn er hinsvegar á öðru máli - MJÖG öðru máli það er að segja .. Ég sagði honum að mér finndist Cannavaro líka mjög sætur og hann sagði bara : "Guð minn almáttugur, hvernig lít ég eiginlega út - ég þarf að fara að kíkja í spegilinn" .. :lol: Þessi umræða okkar lengdist svo aðeins því nú nefnir hann bara marga gaura svona þegar honum dettur í hug, og lætur mig "gúggla" þá, og svo vill hann fá álit mitt á þeim haha .. ! Þetta er bara orðið bráðskemmtilegt kvöld og ég ætla bara að halda áfram að "gúggla" eikkerja kauða sem Heimir nefnir .. Mæli með því að þið gerið það líka .. Ég skal svo skrifa hérna inn á morgun eða hinn hvaða kauðar mér finnst sætir .. Þið eruð allavegana pottþétt komin með Zidane á listann hahaha .. ! :D

Mér fannst þetta auddahh mjög fyndið .. En ákvað að skella inn einni skoðanakönnun hérna til að sjá svona hvað ykkur finndist um Zidane .. Svo skelli ég hérna með nokkrum myndum til að slefa yfir .. :haha: Ekki missa ykkur alveg samt ... He´s my man .. 8) ... Niii má nú ek gera Heimir abbó .. :|

And believe it or not - þá er hann fæddur 23. júní 1972 .. !! --> 34 ára .. Hot ..!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 15:20:35 / Linda

Trukkagellan mikla .. !

Ég held ég sé orðin vinnualki gjörsamlega .. :lol: En það er eikkað sem ég bjóst aldrei við að hægt væri að segja um mig .. Þessa vikuna er ég búin að vakna klukkan 6:30 alla virka daga og vinna í útkeyrslunni hérna innanbæjar á Akureyri til 17:00 á daginn .. Þá fer ég heim og legg mig í hálftíma til að ná einhverjum svefni og svo mæti ég aftur niðrí vinnu klukkan 18:00 og legg af stað í Víðihlíð á trailer og er komin til baka á Akureyri á milli 1:00 og 2:00 að nóttu til .. Þá geng ég frá og fer svo heim til mín, beint uppí rúm og svef til 6:30 .. Ég er semsagt búin að vinna 17-18 tíma á sólarhring alla þessa viku, fimm daga í röð og sef svona 4 1/2 tíma og var því orðin svoldið langþreytt inn við beinið .. Enda svaf ég á laugardaginn til 18:00 .. 8)

Þetta er samt agalega fínt að vinna svona mikið, hélt það væri bara ömurlegt .. En viti menn, ég var farin að verða mjög smeik á föstudaginn þegar ég vissi ekki hvort ég ætti að fara og kallinn var ekkert búinn að hringja til að biðja mig að fara .. Lá bara liggur við í þunglyndi hérna heima uppí rúmi og langaði ekki að horfa á sjónvarpið, langaði ekki í tölvuna, mig langaði BARA í Víðihlíð og vissi ekkert hvað ég ætti eiginlega að gera af mér það sem eftir væri af deginum og sá bara fram á eintóm leiðindi .. :haha:  En, það verður eflaust mjög gott að fá útborgað haha !

En guð minn góður hvað fólk er kexruglað í umferðinni .. !! Maður fer virkilega mikið að taka eftir þessu þegar marr er komin á töluvert stóran bíl og keyrir á löglegum hraða .. Fólk er ekki að gera sér grein fyrir því að svona stórir bílar þurfa pláss, því það heldur að það geti bara verið yfir hvítu línunni og mætt svona trukk - jájá, ekkert mál fyrir trukkinn að víkja, hann hefur nóg pláss eða hitt og .. ! Svo er fólk bara að flýta sér svo mikið og heldur að það sé bara enga stund frammúr svona löngum bíl, en raunin er ekki - þetta tekur meiri tíma en maður heldur þó svo að trukkurinn komist ekki hraðar en 90 km / klst .. Svo bölvar það trukkabílstjórum og svona, en þetta er fólk sem er alltaf í speglunum að fylgjast með til að hleypa framúr strax og mögulegt er, og víkur í öllum tilfellum mjög vel .. Svo ég segi bara : " Fariði varlega í umferðinni " .. ;)

En já, það styttist óðum í bíladaga .. Og viti menn .. !! Ég er orðin ógeðslega pirruð og er búin að vera það seinustu 3 vikurnar því sumardekkin og felgurnar mínar eru fokking ekki ennþá komnar .. !! Þúst ég er alltaf að bíða eftir því að "á morgun" renni upp og svo virðist sem það taki margar vikur .. Þetta er orðið frekar þreytt svona þar sem það er kominn 4. júní og kolólöglegt að vera á nagladekkjunum ennþá, plús það að mig langar svo mikið að fá þetta undir bílinn minn í dag .. En það er erfitt að ná í gaurinn sem flutti þetta inn fyrir mig og þetta er ekkert nema vesen og eintóm loforð svo það er bara tími til kominn að segja öllum frá þessu sem ég get sagt frá þessu og reyna þar með að láta fólk vita af þessu og hann fari að skammast sín og fari nú að redda þessu eða borga mér til baka .. !! :klikk: Orðið MJÖÖÖÖÖG þreytt mál ! Ný saga á hverjum degi akkuru þetta sé ekki komið og eins og ég sagði, þá er mjög svo erfitt að ná í viðkomandi aðila eða ættingja hans og vini .. :evil: Já, það er farið að sjóða uppúr Lindunni fyrir svoleiðis löngu síðan .. !!


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 23:30:37 / Linda

Gróðursetja ??

Já, ég vaknaði um daginn og var að fara í próf .. Allt í lagi með það, nema ég fór að gefa fiskunum mínum að borða, og þá var bara annar þeirra næstum dauður .. :!: :S Ég nottla fékk þetta litla sjokk þar sem hann lá á bakinu í vatninu og flaut bara útum allt, svo ég prufaði að banka í búrið og þá synti hann bara á hvolfi og ég bara WTF 8|

Linda greyið var nottla alveg í sjokki .. Fiskurinn nærri dauða en lífi þarna á hvolfi í vatninu, andaði samt og synti á með eikkerju basli - don´t know how .. Hef aldrei séð neitt þessu líkt .. Fékk nottla þvílíka gæsahúð því mér fannst þetta svo ógeðslegt og hringdi í mömmu undir eins .. Sagði mömmu þessar æsifréttir úr Lækjartúni 16 og hún var nottla alveg miður sín fyrir mína hönd .. :( Hún ráðlagði mér að setja hann í sér vatn, því hann væri örugglega eikkað veikur svona þar sem hann var ekki búinn að vilja borða (og ég ekkert ægilega dugleg að skipta um vatn.....) .. Ég hljóp inní herbergi og vakti Heimir með þessum þvílíku látum, og klukkan var 6:30 að morgni - kaddlinn ekkert agalega sáttur .. :D Ég nottla spurði hann hvort hann væri ekki til í að veiða greyið uppúr og setja hann í nýtt vatn og skál og hann bara : "Böhhhh (og eikker orð sem voru óskiljanleg) .. Ég varð því að redda málunum og veiða fiskinn - grós .. ! Fiskgreyinu batnaði nú ekki mikið, hélt bara áfram að vera á hvolfi þarna alveg rænulaus .. Ég reyndi að gefa honum að borða en þurfti svo að fara í próf, greyið var svo látinn þegar ég var komin heim .. :| Ég hringdi í ættingjana (mömmu) og lét hana vita ..

Seinna um daginn fór ég og setti fiskinn í poka, tók ausu með og keyrði með kaddlinum uppí kirkjugarð .. Ég sagði honum að ég ætlaði að GRÓÐURSETJA fiskinn .. 8| Honum fannst ég nottla algjört frík .. Keyrðum uppí kirkjugarð og jörðuðum greyið .. Þetta var mikil athöfn, þar sem ég sygndi mig og vottaði honum virðingu mína .. Gróf yfir hann og saknaði hanns mikið ..

Ótrúlegt hvað þetta var samt erfitt, að setja einn fisk oní mold .. Fann þá hvað mér þótti alveg agalega vænt um greyið .. :cry: En ég er nú öll búin að jafna mig núna, ætlaði samt að fara að kaupa nýjann handa hinum, svo hann sé ekki bara einn í búrinu .. :haha:

Heyrumst elskuddnar ..


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 17:30:34 / Linda

Strákar ?!

Akkuru hanga þeir í FIFA allann daginn .. ?!

BOOOOOOOOOOOOREEEEEDDDDDDDDDDDDDD ..


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 19:19:07 / Linda

Dagurinn í dag ..

Jey .. Bolludagur í dag .. !
Finnst öllum það ekki voða gaman .. ?
Ótrúlega skrítinn dagur finnst mér, að það hafi verið búinn til sérstakur dagur þar sem að eikker spes bolla er búin til og sett í hana sultu og rjóma og súkkulaði ofaná .. :S

Eeeeeennnnn .. Ég er komin með ógeð á skólanum, og ég á eftir að vera þar 2 annir í viðbót af því að fjarkennslukallinn gleymdi umsókninni minni - fíbbl ! Annars gengur alveg ágætlega samt í skólanum - bara boring að vakna og svona .. Þetta vanalega þið vitið - kannist örugglega öll við þetta ..

Svo .. Út í skemmtilegri sálma .. Þá fer ég vonandi að selja Súbbann eikkerntímann fljótlega af því að mig langar í eikkern annan bíl, svo ef þið vitið um eikkern sem vill kaupa þennan frábæra fjölskyldubíl með dvd afturí fyrir krakkana og svona, þá endilega bendið á mig ;)

Fór til vinkonu minnar í gær - þar sem við vorum fjórar inní litlu herbergi og það eina sem talað var um var hvað karlkyns kynslóðin væri eikkað furðulegt fyrirbæri en því miður þá áttuðu þeir sig ekki á því - vorkenndi eiginlega eina gaurnum sem var á svæðinu .. 8| En þetta var skrautleg umræða .. Very fun .. !


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 19:31:33 / Linda

Valentínusardagurinn & Komandi helgin ..

Jæja .. Þið eruð vonandi búin að lesa seinustu færsluna mína .. ;) Og vonandi hefur hún eikkað fengið suma til að hugsa hvað manni þykir vænt um í lífinu, vænna en maður býst við .. 8)

Valentínusardagurinn var um daginn og hann var æðislegur .. Við Heimir erum meðal annars búin að vera saman í 2 ár og héldum líka uppá það um daginn .. :D Ohh, ég er svo ánægð, elska hann svo roooosa mikið .. Við höfðum það bara mjög gott, ég keypti fullt af dóti til að skreyta íbúðina eikkað rómantískt og svo keyptum við nuddolíur og svona skemmtilegt dót .. 8) Við fórum í Bónus og keyptum í matinn, því við ákváðum að elda eikkað rosa gott frekar en að fara út að borða og þurfa að bíða alls staðar í klukkutíma eftir borði eða eikkað álíka .. Við ákváðum að elda okkur hamborgararhrygg með brúnum kartöflum, sósu og öllu tilheyrandi .. Heimir eldaði á meðan að ég gerði allar skreytingarnar og svo kom ég honum rosa á óvart þegar ég var búin að setja rósablöð á rúmið, borðið frammi, láta renna í bað með rósablöðum og allt voða drama .. ;) Og ekkert nema gaman að því, maður má víst vera ofurvæminn þennan dag .. Fljótlega var svo maturinn til og var hann mjög svo ljúffengur, vanilluís með þeyttum rjóma, jarðarberjum útá, bönunum og súkkulaðibitum .. Mmmmm .. Ég er bara orðin svöng .. ;) En, svo fórum við að horfa á vídjó eftir matinn og skriðum svo uppí rúm með nuddolíuna og tilheyrandi .. :haha:

Guð hvað ég gæti ekki hugsað mér að vera ein á Valentínusardaginn ..
Svo bíður maður bara spennt eftir því hvernig Konudagurinn verður hehehe .. 8)

En .. Yfir í aðra sálma .. helgin er að koma, föstudagur í dag .. Voða spennt fyrir því hvernig keppnin fyrir Eurovision fer, auðvitað ætla ég að kjósa Ardísi úr öllum símum heimilisins og öllum gemsum og tilheyrandi .. Finnst það lag svo langsamlega mest Eurovisionlegt og bara geðveikt flott hjá henni .. Finnst engin önnur lög svona lög sem eru ekta Eurovision .. :$ Allir að kjósa hana .. !!

Þótt mér finnist Sylvía Nótt frekar töff með lagið sitt, þá er það ekki eikkað sem við munum meika það með .. Allir munu halda að við tökum Eurovision bara sem djóki .. Hún er kúl að fara með þetta lag, en ég vil ekki að hún vinni keppnina .. :klikk: Svo, kjósiði þá sem ykkur finnst bestur, ekki bara eftir því hvað er fyndið .. :þ

Anyways .. Ég er víst að fara að vinna í nótt, svo ég ætla að fara að horfa á Idol með elskunni minni, og fara svo bara fljótlega í háttinn eftir það .. Já, þarf að fá mér að borða víst líka .. 8)

Þætti mjög kúl ef þið mynduð skrifa hér fyrir neðan hvern þið munduð / ætlið að kjósa .. ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 14:17:09 / Linda

Pælingar dagsins ..

Skrítið ..

Ég var að taka til í tölvunni minni áðan og eyða helling af drasli sem að maður skoðar aldrei og sömuleiðis eru alltaf eikkerjar myndir sem er til hellingur af, til dæmis 700 myndir af mér, 200 af Lexusnum, og þess háttar og maður þarf ekkert að eiga allar þessar myndir, þannig maður velur að sjálfsögðu þær bestu og fækkar úr 200 í 20 ..

En, það getur oft reynst manni ansi erfitt, ég komst alveg að því áðan .. Hafiði spáð í því þegar maður er að eyða eikkerjum svona myndum, hvað maður er að eyða helling af minningum .. ? Því ég komst alveg að því áðan að hverri mynd fylgir einhver minning .. Auðvitað á maður samt alltaf fullt af myndum sem maður hefur copy-að af netinu og svona sem fylgja sjaldan eikkerjar minningar .. :cry:

Ég hélt ég myndi tárast við tölvuna áðan .. Var að hlusta á lag með Oasis - Stop Crying Your Heart Out sem er alveg ótrúlega fallegt og hjartnæmt lag .. Ég var að taka til í tölvunni, og eyddi þar af leiðandi eikkerjum myndum sem mér fannst ekkert sérstakar og voru til annar flottari sem ég átti þá í staðinn .. Ég komst að því, að ég get ekki eytt myndum af bílunum mínum .. Ég gat heldur ekki eytt neinum myndum af bílunum hans Heimirs .. Hvort sem þær eru úr fókus eða ekki .. Ég bara get það ekki .. Bíll er nefnilega ekki bara bíll, ekki bara eikker hlutur til þess að komast frá A-Ö .. :S Svo get ég ekki eytt myndum af neinum atvikum sem ég hef upplifað með Heimir, fjölskyldunni minni eða eikkerjum vinum mínum .. Maður má stundum ekki bara fletta yfir myndirnar, því þá getur maður hugsað : "Þessi er ekki góð - eyða" .. Ef maður horfir á hverja mynd sem tengist manni á eikkern hátt, þá fara minningarnar að hrannast upp .. 8| Og ótrúlegt en satt, þá tekur það gífurlega á .. Allavegana svona mikla tilfinningaveru eins og mig, sem ligg uppí rúmi að hlusta á vælulag .. :haha:

Þið skiljið öll hvað ég meina með fjölskyldumyndir og svona, flestir finna fyrir eikkerjum minningum þegar að þeir skoða þær, eða ég vona það hehe .. En mig langar aðeins að minnast á bílana, svona fyrst að margir líta á bílinn sem hlut til þess að komast á milli, allt í lagi að hann skemmist svo lengi sem ég er í rétti og svo framvegis - Ótrúlega leiðinlegur hugsunarháttur að mínu mati .. Því hafiði spáð í þessu :

- Við förum rosalega sjaldan út með vinum okkar og fjölskyldu, nema að fara á bíl ..
- Við hittumst iðulega á bílnum, til þess að fara út og rúnta og spjalla ..
- Við skemmtum okkur konunglega í bílnum með öllum sem við elskum, við hlæjum saman, syngjum, "dönsum", spjöllum um daginn og veginn og það sem okkur skiptir máli ..
- Við kynnumst nýju fólki ..
- Við getum átt stundir sem við viljum eiga ein, ef eikkvað bjátar á er oft gott að þrusa út í bíl og hugsa málið, létta á sér, hlusta á tónlist - gráta ?
- Við erum svo frjáls þegar við erum á bílnum, bíllinn kemur okkar þangað sem okkur langar, förum í ferðalög með fjölskyldunni, börnum ? ..

Ég gæti talið endalaust áfram, því ég hef svo oft pælt í þessu .. Þegar við Heimir vorum að kynnast byrjuðum við að fara á rúntinn saman, fórum ýmislegt saman, kysstumst í fyrsta sinn, kynntumst, hlógum fyrstu skiptin saman, ALLT .. Fórum í ferðalög .. Svo lengi mætti telja .. Og allt gerðist þetta fyrst í Corollunni minni og Sunnyinum hans, svo hélt þetta áfram .. Við höfum átt rosalega´góðar stundir í bílunum, við tvö og oft vinir okkar .. Og ég get ekki eytt þessum myndum .. :cry:

Bíll er ekki bara bíll .. ;) Hugsiði út í þetta .. :Þ


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 12:55:32 / Linda

Júróvísjón .. !

Jæja, ég er búin að selja bílinn minn .. Seldi hann seinasta fimmtudag, og er komin á dökkgrænann Subaru Legacy Stw, filmur allann hringinn, dvd skjáir frammí og afturí, bassabox, magnari og gjiðveikur spilari .. Rosa rosa kúl bíll sko .. ;) En ég mun víst ekki eiga hann neitt mjög lengi .. - pósta samt myndum af honum hingað inn bráðum .. !

Anyways .. Mér finnst þessi forkeppni Júróvísjón ógeðslega töff eins og Silvía Nótt segir .. 8) Það eru mörg rosalega töff lög í keppninni, en sum þeirra eru ekki mjög Júróvísjón-leg, því eins og þið vitið þá þýðir ekkert að vera með eikkað vælulag, og það eru svo mörg lög í þessari keppni sem eru rosalega væluleg en ótrúlega falleg lög, svona eiginlega meira til að koma höfundum og söngvurum þeirra laga á framfæri .. En, við verðum að koma í veg fyrir að eikkað vælulag fari í þessa keppni .. Persónulega finnst mér mörg lög þarna geggjuð, Andvaka, Strengjadans og Eyvalagið og mörg mörg fleiri .. En það eru ekki þau lög sem mér finnst að eigi að vinna forkeppnina og fara út að keppa, heldur finnst mér að .......

..... Arndís Ólöf - Eldur nýr & Silvía Nótt - Til hamingju Ísland .... Verði að fara í þessa keppni, annaðhvort lagið, annars verð ég alveg spinnegal .. ! Endilega takiði þátt í skoðanakönnuninni minni hér til hliðar eða segið mér hvaða lög þið styðjið .. :D

Kominn tími til að við vinnum þessa keppni .. :haha: Hér er samt textinn af laginu hennar Silvíu - Til hamingju Ísland, ásamt link þar sem þið getið hlustað á lagið .. ;)

Okei!
Hey þú, ógeðslega töff, ég er að tala við þig
Ég er Silvía Night shining in the light
Ég veit þú þráir mig

Borned in Reykjavík, hæfileikarík ekkert landsbyggðarfrík
Ég veit ég vinn fokkin úrslitin, öll hin lögin hafa tapað

Til hamingju ísland með að ég fæddist hér
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér,
Eurovision nation fæ sko flog er ég kem
ég er fædd til að vinn'etta, tremma í hel!
*Töff töff töff*

Mitt lag, ógeðslega töff ekkert nineties ógeð
Það er töff, ókey, það er ekkert gay
ég er komin hér to stay.
Og hinar tíkurnar eru bólugrafnar en ég er hreinn-æ
Þið elskið mig, þið dýrkið mig en samt eitthvað svo glatað

Til hamingju ísland með að ég fæddist hér
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér
Eurovision nation fæ sko flog er ég kem
ég er fædd til að vinn?etta, tremma í hel!
*Je je je!*

Ísland, Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland,Til hamingju Ísland,
Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland,
Til hamingju Ísland, Til hamingju Ísland.
Ring ring ring
Ring ring ring
Ring ring ring
Ring ring ring

Til hamingju ísland með að ég fæddist hér
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér
Eurovision nation fæ sko flog er ég kem
ég fer til að vinn?etta, tremma í hel!

Til hamingju ísland með að ég fæddist hér
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér
Eurovision nation ég fer fyrir þig
Rústa þessu dæmi fæ tremma-verð stig
*Töff töff töff*

Lagið - http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.html


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 22:02:09 / Linda

Vei vei vei ..

Jæja .. Ég held það sé ótt að segja húrra fyrir mér .. 8)

Núna er kjellan komin til að blogga eitt blogg eða svo, og reyna svo að halda þessu svona með styttra millibili en 4 mánuðir á milli blogga eða eikkað hehe .. :lol:

En það er nú ekki margt búið að gerast þrátt fyrir þetta ..
Bíð bara spennt eftir bíladögum, hlakka svo til, verð þá vonandi komin á nýjann bíl á nýjum felgum og allt voða gaman .. ;) En eins og þið væntanlega vitið, þá er bíllinn minn til sölu, og nei það er ekki þessi sem er með linknum sem Siggeir kallinn póstaði hérna inn um daginn, því það vantar ALLT á hann krakkar mínir, kíttið, krómpakkann, sportpakkann og guð má vita hvað .. :!: Er bara sár skal ég segja .. :(
En ég vona að það sé allt að koma, er kannski að fara að taka eikkern Súbba uppí minn, það er fínasti bíll - vona bara að ég fái það sem ég vill á milli, kallinn var eikkað hálftregur og spurning hvað verður úr því .. :whut:

Ég er byrjuð í skólanum á fullu, og er svona að reyna að standa mig eftir bestu getu .. Er allavegana búin að fá mjög gott útúr seinustu könnunum og heimaverkefnum og svona - gildir allt saman þannig þetta kemur sér mjög vel .. Í sambandið við skólann þá er ég svoldið búin að vera að skoða hvað mig langar að læra þegar ég er búin með framhaldsskólan og ég hef svona einhverjar hugmyndir .. Mig langar svoldið í lyfjafræði .. :haha: Svo koma viðskipta- og hagfræðideildir til greina, og svo langar mig alltaf svoldið í næringarfræði - svona eikkað innan heilbrigðisgeirans fyrir utan það að verða hjúkka og þannig, er ekki mikið fyrir sprautur og guð má vita hvað .. Held samt að það sé mjög gaman að gera eikkað innan heilbrigðisgeirans, iðjuþjálfun væri meira að segja örugglega mjög skemmtilegt .. Hvað finnst ykkur .. ? Hljómar þetta eikkað spennó og gáfulega hjá mér .. ?

Annars er allt gott að frétta af mér og "hómí" .. Hann er bara orðinn derhúfugaur, tjokkóið alveg farið í vaskinn held ég bara .. Hann er svo mikið dúllí, alltaf að borða sængina og eikkað .. Tíhí .. :D Verð búin að breyta þessu bloggi á morgun, hann verður ekki sáttur hehe .. Núna er hann að tala við ofninn .. Við erum nebbla að elda pizzu og ofninn er búinn þannig að hann er búinn að pípa svona "títí títí" í þrjár mínútur eða eikkað .. Loksins lagði kallinn PS2 frá sér og labbaði að ofninum og sagði með svona retarted tón : "Hættu pizza hættu, ég er að koma ofn, hættu pizza hættu" .. :haha: :haha: :haha: Ekki annað hægt en að grenja úr hlátri ..

En .. Meira fljótlega .. Ég lofa .. !
Ykkar Linduz ..


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.10.2005 10:51:46 / Linda

Það sem er að gerast ..

Hæhæ .. Nú ligg ég bara heima uppí sófa, með endalaust mikið kvef og svoldin hita .. Ekkert sérstaklega spennandi en marr verður víst að láta sig hafa það fyrst maður er ekki dugleg að taka lýsið sitt eins og mútter segir að maður eigi að gera .. :haha: Fór í veislu um daginn með Heimi, pabba hans, Örnu Dögg (systur hans) og Jóa kærastanum hennar, Lindu Hrönn (systir pabba hans) og Karen dóttir hennar .. Það var ægilega fínt, fyrir utan það að ég þekkti engann nema þau .. Við nafna mín erum nú ekkert sérstaklega mikið fyrir svona veislur - en það hafðist nú allt .. Að lokum keyrðu Arna Dögg á Pajeronum heim og það var skondin sýning .. Hún er með æfingarakstur og við Heimir höfum aldrei séð hana keyra .. Þegar við vorum ný lögð af stað keyrðum við á eftir þeim á okkar bíl, en við vorum bara tvö í mínum og öll hin í jeppanum .. Allt í einu heyrist í Heimi : "Hvað er AÐ Linda, Arna Dögg er komin í 60, núna 70, SHIT hún er komin uppí 90 - ég er ekki alveg að treysta þessu" og ég sagði við hann : "Heimir, hún getur þetta alveg, hvað meinarru, er eikkað að því að hún keyri á 90 .. ?" og hann segir : "Linda, þetta er ARNA DÖGG!" .. Það var bara endalaust fyndið .. Stóri brósi eikkað hræddur um litlu syst .. ;) Svo vorum við að passa Kristófer um daginn eins og við gerum annars lagið .. Og mamma og amma komu í heimsókn og hann kyssti ömmu .. Algjör dúlla .. Hann varð að kyssa líka af því Heimir kyssti ömmu þegar hann var að þakka henni fyrir innbúsgjöfina .. En yfir í aðra sálma .. Þá er ég byrjuð að vinna með skúlen .. Á Landflutningum bara, fer að vinna bráðum frá 12 á miðnætti á föstudögum til 12 á hádegi á laugardagsmorgnum .. En ég hef verið undanfarinn mánuð að vinna frá 6 á laugardagsmorgnum til 12 á hádegi .. Þetta er rosalega fínt, skemmtilegur félagsskapur og allt .. Reyndar svoldið erfitt að vakna kl 6 á laugardegi, en það reddast .. Svo er maður bara eikkað að reyna að vera í skúlen - á náttúrufræðibrautinni - og er svona að reyna að klára þetta fljótlega .. Svona 2 annir í það .. En, þetta er svona það helsta sem er að frétta .. Við tókum reyndar spólu í gær - The Amitywille House - eða eikkað álíka .. Horrormynd - mæli með henni hún er rosalega spennó .. Og auddahh alveg VEL krípí .. But, blogga meira seinna .. Kveðja Linda ..

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2005 16:41:45 / Linda

Heimurinn í dag ..

Ohh ég er alveg full uppgjafar í sambandi við allt .. Veit ekki afhverju .. Langar svo að kaupa hitt og þetta en það er allt svo geðveikislega dýrt nú til dags .. Það er að gera mig brjálaða .. Borga þetta, borga hitt og þetta hrannast bara upp og verður eikkað meiriháttar dæmi .. Ég á til dæmis ekkert of mikið eftir af sumarpeningnum mínum þar sem ég var svo afskaplega dugleg að spenda peningunum mínum í sumar í eikkað bull og ekki bull .. En ég sé ekkert eftir sumu af þessu - alls ekki .. En afhverju getur maður ekki bara unnið sér inn eina milljón til að eiga á meðan maður er í skólanum þessa 9 mánuðu á árinu og þá getur maður líka lagt eitthvað fyrir og sparað ? Veit ekki veit ekki veit ekki .. Svo eru alltaf þessir endalausu reikningar sem streyma inn um póstlúguna um mánaðarmótin og ætla gjörsamlega af ganga af manni dauðri .. Alltaf eitthvað nýtt sem þarf að borga í þjóðfélaginu - brunatryggingar, hinar og þessar tryggingar og endalaus svona aukakostnaður sem maður er ekki einu sinni að kaupa og maður veit ekki einu sinni hvað maður er að borga því það er ekki eins og upphæðin á reikningnum sé bara fyrir því sem maður hefur verið að nota .. Neihei, það er af einhverjum helvítis vöxtum og ógeði .. ! Af hverju lækkar svo ekki fatakostnaður og matvara og aðrar nauðsynjar .. ?? Skil þetta ekki, það hækkar allt í þessu þjóðfélagi, matur, föt, bensín, íbúðir og allt .. Nefndu það, það hækkar .. En samt fáum við ekkert hærri laun eða þurfum að borga minni vexti af laununum okkar sem er nú yfirleitt einhverjar tugþúsundir af heildarlaunum ... Nei, við eigum að fá sama pening á mánuði en samt að borga miklu meira fyrir allt sem við erum að kaupa .. ! Samt eigum við bara að lifa ágætu lífi .. Furðuleg þessi þróun .. Allt snýst um að einhverjir drullusokkar á Alþingi sem reyna ekkert nema að skapa okkur SLÆMT þjófélag, sita á rassgatinu og bulla einhverja vitleysu því þeir eru jú næstum þeir einu sem fá eitthvað að tjá sig og fá borgað fyrir vitleysuna sem veltur uppúr þeim .. Og það ekkert lítið .. ! Svo er það aftur yfir í allt aðra sálma .. Nenni ekki að borða bara skyr og banana og allt svona .. Allt snýst um að vera alveg 40 kg og fólk lifir í því að borða eitthvað sem því finnst ekki einu sinni gott til að reyna að hugsa um útlitið og það fer í líkamsrækt sem því finnst kannski alveg hundleiðinleg .. Skil þetta ekki, hvað varð um að njóta lífsins og borða það sem manni finnst gott og gera það sem manni finnst skemmtilegt .. Finnst stundum eins og fólk ætli bara að eyða lífinu í að pína sig í ræktarfötin og drulla sér í ræktina og pína sig í að labba í gegnum bónus og kaupa eitthvað sem því finnst ekki gott - stundum bara til að kaupa það svo það sé inní ísskáp og líti vel út .. Svo sit ég við tölvuna og bulla og geri það nákvæmlega sama sjálf, set laufblöð á diskinn með feta osti sem ég fæ samviskubit yfir af því hann er kannski eitthvað feitur og svo borða ég létt ab mjólk með kelloggs .. Vííí .. En stundum eitthvað betra .. Viðurkenni það alveg .. Stundum skil ég bara ekki allt í kringum mig og skil ekki einu sinni sjálfa mig .. Hmm varð bara að tjá mig ..

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 22:57:44 / Linda

Hellú pípol .. !

Ég veit, ég veit, ég veit .. Ég viðurkenni alveg að ég er búin að vera mjög löt við að skrifa hérna inná, alltof löt bara .. En nú er kannski kominn tími til að láta ljós sitt skína eins og maður segir og bulla eikkað hérna inná, þar sem ég hef ekkert betra að gera og langar svo að tjá mig .. :D

Ég er byrjuð í skólanum og það er bara voða fínt fyrir utan að ég hef ekki getað mætt mjög vel í skólann sökum ýmissa ástæðna .. 8| Sem er nottla ekki alveg nógu gott, en marr verður bara að taka sig á fljótlega og laga það ..

Er líka flutt norður þar af leiðandi í íbúðina okkar og við höfum það bara rosa rosa gott og erum bara voða happy, allt búið að breytast þvílíkt og bara búið að vera fullkomið alveg síðan ég kom .. Svo er maður að fara að vinna og læti hjá Landflutningum um helgar, þaning að það verður örugglega mjög fínt, mikil næturvinna og ég vön þessu djobbi og áhugasöm um þetta allt saman, þannig þetta mun vonandi ganga eins og í sögu, svo er bara að trukkast næsta sumar og keyra látlaust á milli vonandi .. 8) Vera svöööl á trukknum .. Algjör gellz .. :haha:

En það er margt að gerast núna .. Mikið um að vera þannig lagað .. Sem er bara gott að vissu leyti .. En nú er ég að spá í því að byrja á fullu í ræktinni, er búin að vera mikið að fara út að hlaupa síðkastið, ætla að losna við svona 5-10 kg og byggja mig svo upp og fara að lyfta alveg heavy voða stuð .. :evil:

Á ég að lita hárið aftur alveg ljóst .. ? Sleppa þesssu brúna undir þið vitið .. ?

Linduz kveður að sinni .. :) Love you ..


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3